Archive for April, 2009

Maurvarpið - 11. þáttur
Wednesday, April 15th, 2009

Páskar eru að baki og því er við hæfi að Maurvarpið sé á trúarlegum nótum í ellefta þætti. Stjórnendur ræða eigin trúarafstöðu á opinskáan og einlægan hátt auk þess að boða út anda kærleika og friðar.

Smellið hér til að gerast áskrifendur með iTunes

Maurvarpið - 10.þáttur
Tuesday, April 7th, 2009

Hér lýkur spjalli okkar við Jón Örn Loðmfjörð. Opinberanir hrynja af vörum eins og svitaperlur af enni formanns Frjálslyndra í ræðustól. Meðreiðarsveinn er Charles Manson eins og fyrr.

.
Smellið hér til að gerast áskrifendur með iTunes.

Maurvarpið - 9. þáttur
Monday, April 6th, 2009

Í níunda þætti höldum við áfram samræðum okkar við ljóðskáldið, glaumgosann og gleðigjafann Jón Örn Loðmfjörð. Enn á ný má enginn láta þessa þætti framhjá sér fara - nema þeir sem takmarkaðan áhuga hafa á umræðum um ljóð og drama innan ljóðakreðsa. Sem eru nú varla margir.

.
Smellið hér til að gerast áskrifendur með iTunes.

Maurvarpið - 8. þáttur
Sunday, April 5th, 2009

Nýjasti þáttur Maurvarpsins er sérstakur að því leyti að hann er sérlega langur. Af þeim sökum verður honum skipt í 3 nokkuð jafna hluta, og sá fyrsti af þeim birtist hér. Sérstakur gestur er ljóðskáldið Jón Örn Loðmfjörð sem ræðir við þáttarstjórnendur um lífið, tilveruna og ljóðið. Enginn má missa af þessu tímamótaverki í íslenskri […]