Maurvarpið - 11. þáttur

April 15th, 2009 - 11879 Responses

Páskar eru að baki og því er við hæfi að Maurvarpið sé á trúarlegum nótum í ellefta þætti. Stjórnendur ræða eigin trúarafstöðu á opinskáan og einlægan hátt auk þess að boða út anda kærleika og friðar.

Smellið hér til að gerast áskrifendur með iTunes

Maurvarpið - 10.þáttur

April 7th, 2009 - 13230 Responses

Hér lýkur spjalli okkar við Jón Örn Loðmfjörð. Opinberanir hrynja af vörum eins og svitaperlur af enni formanns Frjálslyndra í ræðustól. Meðreiðarsveinn er Charles Manson eins og fyrr.


.
Smellið hér til að gerast áskrifendur með iTunes.

Maurvarpið - 9. þáttur

April 6th, 2009 - 11977 Responses

Í níunda þætti höldum við áfram samræðum okkar við ljóðskáldið, glaumgosann og gleðigjafann Jón Örn Loðmfjörð. Enn á ný má enginn láta þessa þætti framhjá sér fara - nema þeir sem takmarkaðan áhuga hafa á umræðum um ljóð og drama innan ljóðakreðsa. Sem eru nú varla margir.


.
Smellið hér til að gerast áskrifendur með iTunes.

Maurvarpið - 8. þáttur

April 5th, 2009 - 12395 Responses

Nýjasti þáttur Maurvarpsins er sérstakur að því leyti að hann er sérlega langur. Af þeim sökum verður honum skipt í 3 nokkuð jafna hluta, og sá fyrsti af þeim birtist hér. Sérstakur gestur er ljóðskáldið Jón Örn Loðmfjörð sem ræðir við þáttarstjórnendur um lífið, tilveruna og ljóðið. Enginn má missa af þessu tímamótaverki í íslenskri útvarpssögu.

Smellið hér til að gerast áskrifendur með iTunes.

Maurvarpið - 7. þáttur

March 22nd, 2009 - 12081 Responses

Sjöundi þáttur samanstendur að megninu til af einræðum Ragnars um ljóð og ljóðskáld. Njótið.

Smellið hér til að gerast áskrifendur með iTunes.

Maurvarpið - 6. þáttur

March 7th, 2009 - 12314 Responses

Í sjötta þætti er snúið aftur í hefðbundið snið þáttarins og þemapælingar yfirgefnar. Meðal efnis eru bráðskarpar umræður um líkamsvessa auk ræðukeppni milli þáttastjórnenda - í Morfís-stíl.

Smellið hér til að gerast áskrifendur með iTunes.

Maurvarpið - 5. þáttur

February 19th, 2009 - 12129 Responses

Fimmti þáttur Maruvarps er æði sérstakur enda fyrsti þemaþáttur seríunnar. Þemað að þessu sinni eru lögbrot, og ber þátturinn merki þess. Af því tilefni er þátturinn aukinheldur af aukinni lengd, nálega 70% lengri en venja er.

Smellið hér til að gerast áskrifendur með iTunes.

Maurvarpið - 4. þáttur

February 5th, 2009 - 12100 Responses

Fjórði þáttur Maurvarpsins er sannkallað brautryðjendaverk. Bíórýnin er á sínum stað og stjórnendur spreyta sig í klassískri spurningakeppni ásamt ótal mörgu öðru.

Smellið hér til að gerast áskrifendur með iTunes.

Maurvarpið - 3. þáttur

January 30th, 2009 - 12335 Responses

Þriðji þáttur Maurvarpsins hefur loks litið dagsins ljós. Nú þegar Íslendingar flykkjast á hlaupabretti og göngustíga í mannræktarátaki er ekki nema von að hugur þáttarstjórnenda sé á svipuðum línum.

Smellið hér til að gerast áskrifendur með iTunes.

Maurvarpið - 2. þáttur

December 10th, 2008 - 12535 Responses

Í öðrum þætti Maurvarpsins vex umsjónarmönnum ásmegin í tæknimálum og þeir henda á lofti allra handa stef. Umfjöllunarefnin eru að venju fjölbreytt og gerð er metnaðarfull tilraun til nýrrar tegundar af gagnvirkni. 

Smellið hér til að gerast áskrifendur með iTunes.